Sogavegur 224
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 10. júlí 2009 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Sogavegar vegna lóðarinnar nr. 224 við Sogaveg. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir bílageymslu er stækkaður og færður til á lóð samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti +arkitekta dags. 19. desember 2008 lagf. 19. ágúst 2009.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Sogavegi 222.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Þórarinn Þórarinsson, símatími 9-10 mánudaga og fimmtudaga.
Kynning hefst þann 31. ágúst og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 28. september 2009.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
Deiliskiplagstillagan (PDF)
F.h. skipulagsstjóra
Þórarinn Þórarinsson