Hrafnista við Brúnaveg
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 13. ágúst 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Hrafnistu skv. meðfylgjandi uppdrætti, dags. 12. ágúst 2010. Um er að ræða stækkun á aðalanddyri Hrafnistu.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Jökulgrunni 18 - 28 og 25 - 29.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Gunnhildur Gunnarsdóttir, símatími þriðjudaga og föstudaga milli kl. 9 og 10.
Kynning hefst þann 19. ágúst nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 16. september 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Gunnhildur Gunnarsdóttir