Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Umsókn um styrk úr borgarsjóði


Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkirnir eru ætlaðir viðburðum eða verkefnum sem koma til framkvæmda á næsta ári. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis. Umsókn skal berast eigi síðar en 1. október 2010.

Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Þeir aðilar sem fengið hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfnun þess fjár.


Styrkumsækjandi

 
Forráðamaður/Tengiliður
 
Bankaupplýsingar
Sótt er um styrk fyrir verkefni á sviði
Tilgreinið styrkupphæð sem sótt er um (án þess er umsóknin ekki tekin gild)
Vakin er athygli á að alla jafna eru ekki veittir styrkir til kaupa á húsnæði heldur er leitast við að styrkja og efna til samstarfs á grundvelli samninga (styrksamningar, samstarfssamningar, þjónustusamningar) um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í samræmi við áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Ekki eru veittir styrkir til greiðslu fasteignagjalda.
Hefur Reykjavíkurborg áður styrkt verkefni umsækjanda?
Hefur Reykjavíkurborg áður synjað samsvarandi styrkbeiðni?
Athygli er vakin á því að styrkir eru framtalsskyldir.
Styrkþegum er skylt að gera tæmandi grein fyrir ráðstöfun fenginna styrkja í sérstakri greinargerð, hægt er að nálgast eyðublöðin á www.reykjavik.is. Umsókn frá aðila sem áður hefur fengið styrk en ekki skilað greinargerð er ekki tekin til greina. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að afla frekari upplýsinga um hvernig styrk hefur verið varið.
Markmið verkefnis eða starfsemi
Verk- og tímaáætlun
Önnur fjármögnun eða starfsemi og gögn því til stuðnings
Kostnaðaráætlun (Tekjur)
Kostnaðaráætlun (Gjöld)
Fylgiskjöl
Umsóknir skulu metnar með hliðsjón af
a) markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð.
b) hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf.
c) hvort unnt sé að meta framvindu verksins.
d) hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur.
e) væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi.
f) fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn.