|
Efnahagsvandinn - fáðu svör!
Á vefnum Island.is er að finna tengingar og helstu upplýsingar um stöðu mála og margvíslega upplýsingaþjónustu og ráðgjöf sem í boði er á vettvangi ráðuneyta og stofnana vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði.
Upplýsingasíða félagsmálaráðuneytis
Félags- og tryggingamálaráðaneytið hefur sett á fót samræmt þjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði og opnað grænt símanúmer 800-1190.
Börnin í borginni Aðilar Reykjavíkurborgar sem sérstaklega vinna með börnum og unglingum hafa tekið höndum saman undir yfirskriftinni Börnin í borginni.
Þjónusta fyrir einstaklinga og fjölskyldur Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur tekið saman upplýsingar um ýmsa þjónustu sem stofnanir og félagasamtök veita einstaklingum og fjölskyldum.
- Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar
- Ráðgjöf á þjónustumiðstöðvum
- Félagsstarf fyrir fullorðna
- Skóla– og sérfræðiþjónusta fyrir
börn og unglinga
- Tómstundir barna og unglinga
- Nám ‐ símenntun ‐ fullorðinsfræðsla
- Börn og fjölskyldur
- Húsnæðismál
- Atvinnumál
- Erlendir íbúar
- Fjárhags‐ og greiðsluerfiðleikar
- Önnur aðstoð
Úrræði um sálrænan stuðning Samantekt menntamálaráðuneytis yfir úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni í skólum landsins, ungmenni í íþrótta- og æskulýðsstarfi og fyrir nemendur í háskólum og öðrum fræðslustofnunum landsins.
Hjálparsími Rauða krossins Hjálparsími Rauða krossins 1717 er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna kvíða, þunglyndis, depurðar, efnahagsáhyggja eða jafnvel sjálfsvígshugsana. Veitt er ráðgjöf til fólks á öllum aldri sem óskar eftir stuðningi.

|