Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Blátt áfram hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2010

03.06.2010

Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Blátt Áfram eru sjálfstæð félagasamtök sem að systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur stofnuðu árið 2004. Tilgangur samtakanna er að efla fræðslu og forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði við afhendingu Mannréttindaverðlaunanna að fulltrúar samtakanna hafi verið óþreytandi í baráttu sinni við að koma málinu á dagskrá í íslensku samfélagi og væru því vel að þessari viðurkenningu komnir.

Blátt áfram hefur unnið að því að fræða almenning um forvarnir gegn kynferðisofbeldi gagnvart börnum og skelfilegar afleiðingar þess. Ásamt því að upplýsa börn og ungmenni um hættur sem ber að varast og efla kjark þeirra til að segja frá, hefur starf samtakanna beinst að því að vekja athygli á því að ábyrgð á börnunum og velferð þeirra er í höndum fullorðinna í umhverfi barnsins. Sigríður Björnsdóttir og Birta Ósk Friðbertsdóttir 11 ára tóku við Mannréttindaverðlaununum fyrir hönd samtakanna sem er listaverk eftir Söru Vilbergsdóttur. Sigríður var afar þakklát og sagði þessa viðurkenningu mikilvæga fyrir samtökin og sönnun þess að starfið er að skila árangri