Ljómandi borg - forsíða


12.06.2009

Ljómandi borg


Í myrkrinu gerast mörg ævintýri. Skuggar lengjast. Stjörnur og norðurljós birtast. 

Í vetur tekur Reykjavík á sig notalegan blæ og margt hægt að gera innandyra sem utan.

Ljómandi borg hefur það markmið að minna á þá frábæru samkomustaði sem standa borgarbúum til boða svo sem sundlaugar, bókasöfn og listasöfn sem taka hlýlega á móti gestum. Hljómskálinn stendur borgarbúum opinn á ný á aðventu, barnadagskrá verður í bókasöfnum, Sinfóníuhljómsveit Íslands hljómar í sundlaugum og borgarbúar geta skemmt sér á skautum í Hljómskálagarðinum.

Um leið og tendrað verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey fagnar Reykjavíkurborg vetrinum með því að tendra hvít ljós á samkomustöðum víðsvegar um borgina.

Þú getur tekið þátt í Ljómandi borg með því að kveikja á kerti eða hvítum ljósum í þínu nærumhverfi.

Í tilefni tendrunar Friðarsúlunnar 2009 býður Yoko Ono ókeypis ferðir til Viðeyjar 9., 10. og 11. október. Einnig býður hún á tónleika til heiðurs John Lennon í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi 9. október kl. 22:00.

www.reykjavik.is

www.9oktober.is

www.videy.com

 



""

""

""

""