Fréttir
Nýtt eimbað verður opnað í Grafarvogslaug á föstudag og er það byggt á grunni eldra eimbaðs sem orðið var tímabært að endurnýja. Gestir laugarinnar hafa sýnt biðlund gagnvart framkvæmdum en gamla eimbaðið, sem var byggt til bráðabrigða á sínum tíma, var fjarlægt í haust. Nú er biðin á enda og tilhlökkun mikil, ekki síst á meðal fastagesta. Þá munu gestir einnig endurheimta útisturturnar og komið hefur verið fyrir drykkjarfonti úr stuðlabergi í nálægð við eimbaðið.
Föstudaginn 6. janúar verður hin árlega Þrettándagleði Grafarvogsbúa haldin við Gufunesbæinn. Gleðin hefst kl. 17:00 með kakó- og kyndlasölu við Hlöðuna þar sem skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög. Blysför að brennunni og kveikt í kl. 17:45. Við tekur skemmtun og söngur á sviði. Gleðin endar á skot kökusýningu í boði Íslenska gámafélagsins. Allir velkomnir!
Reykjavíkurborg óskar nú eftir hugmyndum á vefnum Betri Reykjavík til eflingar og fegrunar í hverfum Reykjavíkur. Sett hefur verið upp undirsíða á Betri Reykjavík sem nefnist Betri hverfi. Þar geta íbúar sett inn hugmyndir að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfunum og stutt hugmyndir annarra eða hafnað þeim.