Endurnýjun Menningarkorts
Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 1.000 króna afslátt ef kortið er endurnýjað innan mánaðar frá því það rann út.
Handhafar rauðs Menningarkorts Listasafns Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundasafn) og græna Menningarkorts Minjasafns Reykjavíkur (Árbæjarsafn og Landnámssýning) geta líka nýtt sér þetta tilboð ef þeir vilja skipta yfir í blátt Menningarkort Reykjavíkur.
Menningarkortið bláa er á sama verði og á síðasta ári eða 5.000 krónur - en bara 4.000 fyrir þig ef þú nýtir þér tilboðið . Menningarkortið er ekki lengi að borga sig því bókasafnsskírteini kostar nú kr. 1.600 og ein heimsókn á Listasafn Reykjavíkur eða Minjasafn kr. 1.100.
Hægt er að endurnýja kortið á öllum þessum sölustöðum :
Listasafn Reykjavíkur: Hafnarhús, Kjarvalsstaðir, Ásmundarsafn
Minjasafn Reykjavíkur: Árbæjarsafn, Landnámssýning
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Kringlusafn, Sólheimasafn, Gerðubergssafn, Foldasafn og Ársafn
Jafnframt er unnt að hringja í síma 590-1200 og greiða með kreditkorti.
Þá er líka hægt að millifæra úr heimabanka: á reikning 0101-26-54729 kennitala 470987-1979. Vinsamlegast setjið skýringuna „Menningarkort" ásamt kennitölu korthafa staðfestingu á netfangið heidrun.adalsteinsdottir@reykjavik.is
MENNINGARKORT REYKJAVÍKUR – LISTILEGA EINFALT
Menningarkort Reykjavíkur er ný og ódýr leið til að njóta menningar borgarinnar. Menningarkortið gildir í Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn), Minjasafn Reykjavíkur (Árbæjarsafn og Landnámssýningu) og fá handhafar þess einnig bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur.
Menningarkortið gildir í ár frá virkjun kortsins, en auk þess að gilda á allar sýningar og viðburði á vegum safnanna, veitir það 10% afslátt á veitingastaði safnanna, safnverslanir og fleira. Verði kortsins er haldið í algjöru lágmarki, en það kostar aðeins kr. 5.000,-
Athugið að frítt er fyrir börn upp að átján ára aldri og eldri borgarar þurfa hvorki að greiða fyrir aðgang að ofangreindum söfnum né fyrir bókasafnskort.
BLÁTT, RAUTT OG GRÆNT KORT
BLÁTT MENNINGARKORT kostar 5.000 kr. og gildir sem árskort í Listasafn Reykjavíkur, Minjasafn Reykjavíkur og fá handhafar þess einnig bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort m.a. í safnverslanir og veitingasölur innan menningarstofnana Reykjavíkurborgar.
RAUTT MENNINGARKORT kostar 3.000 kr. og gildir sem árskort í Listasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort í Listasafnið.
GRÆNT MENNINGARKORT kostar 3.000 kr. og gildir sem árskort í Minjasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort í Minjasafnið.
Kortið er virkjað við afhendingu en gjafakort eru virkjuð við fyrstu notkun.
Hér má nálgast lista yfir sölustaði.
Gríðarlegur sparnaður hlýst af Menningarkortunum, en samkvæmt nýjum samþykktum borgarráðs er aðgangseyrir í hvert og eitt safnhús Listasafns Reykjavíkur frá og með 1. janúar 2012 kr. 1.100,- Sama gjaldtaka verður hjá Minjasafni Reykjavíkur, kr. 1.100 á sýningar Árbæjarsafns og sama aðgönguverð í Landnámssýninguna. Verð á bókasafnskorti er kr. 1.600,-
Menningarkortið er hagkvæm leið fyrir alla til að sækja sér metnaðarfulla og innihaldsríka upplifun allan ársins hring.
FYRIRTÆKJAPANTANIR
Fyrirtæki geta pantað menningarkort með því að senda tölvupóst á menningarkort@reykjavik.is eða hringt í síma 590-1508. Í tölvupóstinum þarf að koma fram fjöldi korta, tengiliður, kennitala og heimilisfang. Kortin fást í fallegri gjafaöskju sem verða send til viðkomandi fyrirtæki um leið og búið er að ganga frá pöntuninni.