
2 fyrir 1 á Árbæjarsafn í júní
Sumarið er tíminn á Árbæjarsafni og nú þegar sumarið er loks komið er við hæfi að Menningarkortshöfum bjóðist að taka með sér gest á safnið allan júnímánuð. Það er margt að sjá á Árbæjarsafni og því er um að gera að koma þangað oft - og dvelja lengi.
Sýningar og dagskrá
Í sumar er boðið upp á nokkrar nýjar sýningar á Árbæjarsafni, til að mynda í tengslum við aldarafmæli Heimilisiðnaðarfélags Íslands. Þá er fjölbreytt dagskrá í boði alla sunnudaga og markmiðið er að flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Í því sambandi má nefna Handverksdag Heimilisiðnaðarfélagsins, Fornbíladaginn, Harmonikkuhátíð og fleira. Nánari upplýsingar má finna á www.minjasafnreykjavikur.is og auðvitað á síðu Árbæjarsafns á Facebook.
Tilboð á veitingum
Venju samkvæmt býður Dillonshús upp á ljúffengar veitingar á Árbæjarsafni og mun veita Menningarkortshöfum 15% afslátt af veitingum í júní gegn framvísun menningarkorts. Það er því kjörið fyrir korthafa að setjast niður í huggulegu umhverfi Dillonshúss og njóta veitinga.
----------------------------------------------

2 fyrir 1 í Bíó Paradís á mánudögum í apríl
Bíó Paradís býður Menningarkorthöfum 2 fyrir 1 í bíó á mánudögum í apríl. Bíó Paradís sýnir nýjar áhugaverðar kvikmyndir frá öllum heimshornum, hýsir kvikmyndahátíðir og stendur fyrir fjölbreyttum kvikmyndatengdum viðburðum. Í húsinu fara reglulega fram sýningar á perlum kvikmyndanna fyrir börn og unglinga, þar sem markmiðið er að efla þekkingu og menntun á þessari mikilvægu listgrein.
Í Bíó Paradís er einnig að finna veitingahús og verslun með mynddiska og annan kvikmyndatengdan varning.
Bíó Paradís er því nokkurskonar hjarta kvikmyndamenningar í landinu og er áfangastaður allra þeirra sem vilja eiga góðar stundir í afslöppuðu umhverfi sem angar af andrúmslofti kvikmyndanna.
Hér er er að finna tengil á dagskránna í Bíó Paradís.
----------------------------------------------
Vinatilboð í Ásmundarsafni allan marsmánuð
Listasafn Reykjavíkur býður öllum Menningarkorthöfum að taka með sér gest í Ásmundarsafn allan marsmánuð.
Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir dagskrá og kynningu á Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara (1893-1982) í tilefni af því að í ár eru 120 ár frá fæðingu hans. Leiknir og lærðir koma að dagskránni sem hefst í Ásmundarsafni sunnudaginn 3. mars kl. 14. Dagskráin er í umsjón Þorgríms Gestssonar rithöfundar í samstarfi við Ásmundarsafn.
Heildardagskrá:
„Hver var þessi Ásmundur ?“
Sunnudag 3. mars kl. 14
Þorgrímur Gestsson skoðar feril listamannsins og leitast við að draga upp mynd af honum og list hans.
Arkitektinn Ásmundur Sveinsson.
Sunnudag 7. apríl kl. 14
Pétur Ármannsson arkitekt fjallar um þau hús við Freyjugötu og Sigtún sem Ásmundur reisti að mestu með eigin höndum og standa nú og bera hagleik og dugnaði hans vitni.
Konurnar í verkum Ásmundar
Sunnudag 5. maí kl. 14
Myndlistarkonan Guðrún Erla Geirsdóttir (GERLA) bregður upp mynd af jafnréttissinnanum Ásmundi og ræðir um konurnar í verkum hans.
Útilistaverk Ásmundar Sveinssonar
Sunnudag 2. júní kl. 14
Þorbjörg Gunnarsdóttir listfræðingur ræðir um afstöðu Ásmundar til listar í almenningsrými. Gengið verður um höggmyndagarðinn við Ásmundarsafn ásamt því að fara vítt og breitt um borgina þar sem verk Ásmundar finnast.
Kynnið ykkur dagskrá og opnunartíma safnanna á heimasíðum Listasafns Reykjavíkur, Minjasafns Reykjavíkur og Ljósmyndasafns Reykjavíkur.
----------------------------------------------
Endurnýjun Menningarkorts
Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 1.000 króna afslátt ef kortið er endurnýjað innan mánaðar frá því það rann út.
Handhafar rauða Menningarkorts Listasafns Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundasafn) og græna Menningarkorts Minjasafns Reykjavíkur (Árbæjarsafn og Landnámssýning) geta líka nýtt sér þetta tilboð ef þeir vilja skipta yfir í blátt Menningarkort Reykjavíkur.
Menningarkortið bláa er á 5.500 krónur - en bara 4.500 fyrir þig ef þú nýtir þér tilboðið. Menningarkortið er ekki lengi að borga sig því bókasafnsskírteini kostar nú kr. 1.700 og ein heimsókn á Listasafn Reykjavíkur eða Minjasafn kr. 1.200.
Hægt er að endurnýja kortið á öllum þessum sölustöðum :
Listasafn Reykjavíkur: Hafnarhús, Kjarvalsstaðir, Ásmundarsafn
Minjasafn Reykjavíkur: Árbæjarsafn, Landnámssýning
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Kringlusafn, Sólheimasafn, Gerðubergssafn, Foldasafn og Ársafn
Jafnframt er unnt að hringja í síma 590-1200 og greiða með kreditkorti.
Þá er líka hægt að millifæra úr heimabanka: á reikning 0101-26-54729 kennitala 470987-1979. Vinsamlegast setjið skýringuna „Menningarkort" ásamt kennitölu korthafa og sendið staðfestingu á netfangið heidrun.adalsteinsdottir@reykjavik.is
-------------------
10 jóla- og tækifæriskort á verði 5 og vinatilboð á Kjarvalsstaði og Landnámssýningu
Listasafn Reykjavíkur, Minjasafn Reykjavíkur og Ljósmyndasafn Reykjavíkur bjóða öllum Menningarkortshöfum tíu kort á verði fimm úr völdum kortum úr safnverslunum allan desember.
Um er að ræða fjölbreytt úrval korta sem hægt er að nota sem tækifæris- eða jólakort.
Einnig bjóða söfnin Menningarkortshöfum að taka með sér gest allan desember á Kjarvalsstaði og á Landnámssýninguna við Aðalstræti.
Í tilefni af vinavikunni býður hinn frábæri veitingastaður Kaffi kompaníið upp á tilboð fyrir alla Menningarkortshafa á gómsætum og hollum hádegisverði á Kjarvalsstöðum, súpa og brauð á tilboði 2 fyrir 1.
-------------------
Listileg og góð gjöf
Menningarkort Reykjavíkur eru listileg og góð jólagjöf en það veitir aðgang að listasöfnum borgarinnar og að Borgarbókasafninu í heilt ár auk 200 annarra viðburða. Menningarkort Reykjavíkur er tilvalin jólagjöf handa þeim sem vilja sækja sér metnaðarfulla og innihaldsríka upplifun allan ársins hring!
Kortið er tilvalið í jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna sinna. Boðið er upp á magnafslátt sem hér segir:
|
Fjöldi |
% |
Afsláttur |
Heildarverð |
|
10 - 99 kort |
10% |
500 kr. |
5000 kr. |
|
100 - 299 kort |
20% |
1000 kr. |
4500 kr. |
|
300 eða fleiri |
30% |
1500 kr. |
4000 kr. |
Frekari upplýsingar og pantanir á menningakort@reykjavik.is
----------------------------
Afsláttur fyrir menningarkortshafa á leikhúskortum Borgarleikhússins
Haustið er framundan með öllu sínum menningarframboði og verður mikið um að vera á menningarstofnunum borgarinnar í vetur. Eins og fyrr býðst handhöfum menningarkorta að kaupa árskort í Borgarleikhúsið með 1000 króna afslætti. Jafnframt er nú boðið upp á þá nýjung að öllum korthöfum Borgarleikhússins býðst að kaupa menningarkort með 10% afslætti og er þá kortið á kr. 4.500.- Fjölbreytt framboð Borgarleikhússins má sjá á www.borgarleikhus.is
Að auki fylgja Menningarkorti Reykjavíkur fjölmörg fríðindi í tengslum við menningarstofnanir Reykjavíkurborgar, sjá nánar hér.
------------------
MENNINGARKORT REYKJAVÍKUR – LISTILEGA EINFALT
Menningarkort Reykjavíkur er ný og ódýr leið til að njóta menningar borgarinnar. Menningarkortið gildir í Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn), Minjasafn Reykjavíkur (Árbæjarsafn og Landnámssýningu) og fá handhafar þess einnig bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur.
Menningarkortið gildir í ár frá virkjun kortsins, en auk þess að gilda á allar sýningar og viðburði á vegum safnanna, veitir það 10% afslátt á veitingastaði safnanna, safnverslanir og fleira. Verði kortsins er haldið í algjöru lágmarki, en það kostar aðeins kr. 5.500,-
Athugið að frítt er fyrir börn upp að átján ára aldri og eldri borgarar þurfa hvorki að greiða fyrir aðgang að ofangreindum söfnum né fyrir bókasafnskort.
BLÁTT, RAUTT OG GRÆNT KORT
BLÁTT MENNINGARKORT kostar 5.500 kr. og gildir sem árskort í Listasafn Reykjavíkur, Minjasafn Reykjavíkur og fá handhafar þess einnig bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort m.a. í safnverslanir og veitingasölur innan menningarstofnana Reykjavíkurborgar.
RAUTT MENNINGARKORT kostar 3.300 kr. og gildir sem árskort í Listasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort í Listasafnið.
GRÆNT MENNINGARKORT kostar 3.300 kr. og gildir sem árskort í Minjasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort í Minjasafnið.
Kortið er virkjað við afhendingu en gjafakort eru virkjuð við fyrstu notkun.
Hér má nálgast lista yfir sölustaði.
Gríðarlegur sparnaður hlýst af Menningarkortunum, en samkvæmt nýjum samþykktum borgarráðs er aðgangseyrir í hvert og eitt safnhús Listasafns Reykjavíkur, Árbæjarsafn og Landsnámssýninguna kr.1.200 frá og með 1. janúar 2013 kr. 1.200. Verð á bókasafnskorti er kr. 1.700,-
Menningarkortið er hagkvæm leið fyrir alla til að sækja sér metnaðarfulla og innihaldsríka upplifun allan ársins hring.
FYRIRTÆKJAPANTANIR
Fyrirtæki geta pantað menningarkort með því að senda tölvupóst á menningarkort@reykjavik.is eða hringt í síma 590-1508. Í tölvupóstinum þarf að koma fram fjöldi korta, tengiliður, kennitala og heimilisfang. Kortin fást í fallegri gjafaöskju sem verða send til viðkomandi fyrirtæki um leið og búið er að ganga frá pöntuninni.