Hjóladagur fjölskyldunnar á laugardag
17.09.2009
Hjóladagur fjölskyldunnar verður laugardaginn 19. september. Þátttakendur munu hittast á völdum áfangastöðum þar sem reyndir hjólreiðamenn taka á móti og fylgja hópnum í Nauthólsvík. Borgarstjóri og bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu munu hittast á reiðhjólum í Nauthólsvík og hjóla ásamt hópnum í Ráðhúsið þar sem boðið verður upp á hressingu.
„Við ætlum að fá sem flesta út að hjóla og skapa góða hjólreiðastemningu í borginni, við viljum að vera sýnileg og jafnvel fyrirferðamikil í umferðinni,“ segir Pálmi Freyr Randversson verkefnastjóri Samgönguviku 2009 og segir það ánægjulegt að sjá fólk í stórum hópum hjóla um borgina.
Hjóladagur fjölskyldunnar er árviss viðburður í borginni. Honum lýkur í Ráðhúsinu þar sem þátttakendur geta fylgst með Tjarnarsprettinum þar sem hjólaðir eru 15 hringir í kringum Tjörnina á götuhjólum. Einnig bjóða fagmenn áhorfendum upp á listir sínar á BMX freestyle hjólum.
Tengill: Kort sem sýnir hjólaleiðir laugardaginn 19. sept.
Næst á dagskrá Samgönguviku: Hádegismálþing 18. sept
Samgönguvika - laugardagur 19/9: Hjóladagur Fjölskyldunnar & Tjarnarspretturinn.
Suðurlest:
11:30 frá Thorsplani í Hafnarfirði
12:10 frá Sjálandsskóla í Garðabæ
12:50 frá Gerðasafni í Kópavogi
Austurlest:
11:30 frá Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ
12:00 frá Hallsteinshöfða í Grafarvogi
12.10 frá Gullinbrú í Grafarvogi
12:30 frá Minjasafni Orkuveitunnar í Elliðaárdal
Vesturlest:
12:45 frá Seltjarnarneslaug
13:00 frá Ægisíðu
13:45 allir hjóla saman frá Nauthólsvík að Ráðhúsi Reykjavíkur
14:00 Ráðhús Reykjavíkur
14:30 Tjarnarsprettinn á götuhjólum ræstur
15:00 hjólasirkus Freestyle snillinga í Ráðhúsinu í Reykjavík
15:30 verðlaunaafhending Tjarnarsprettsins
16:00 Reykjavíkur DownTownHill 2x frá Hallveigarstíg niður fyrir MR