09.02.2010
Nú er komið að Útþrá 2010 sem veitir ungu fólki kost á að skoða á einum stað öll þau fjölmörgu tækifæri sem í boði eru fyrir Íslendinga erlendis. Það eru 13 aðilar og fyrirtæki sem munu kynna starfsemi sína og það nám, starf, ferðir, sjálfboðastörf og fleira skemmtilegt sem þau bjóða uppá erlendis.
Kynningin er sérstaklega hönnuð fyrir þarfir 16-25 ára ungmenna en að sjálfsögðu eru allir velkomnir, gómsætar veitingar og frítt inn.
Útþrá 2010 verður haldin þriðjudaginn 9. febrúar frá kl 16-18 og mun fara fram í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5.
Eftirfarandi aðilar kynna spennandi möguleika:
AFS á ÍslandiAIESECAlþjóðaskrifstofa háskólastigsinsAlþjóðleg ungmennaskipti-AUSEures-VinnumiðlunEuropassEvrópa Unga FólksinsLýðháskólar á NorðurlöndumNordjobbNínukotSEEDSSÍNESnorri West verkefniðUpplýsingamiðstöð HHVeraldarvinir
sjá nánar www.hitthusid.is