Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Útboðsauglýsingar

16.04.2010

Fellaskóli, Norðurfelli 17-19 – lóðarframkvæmd.

F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

Fellaskóli, Norðurfelli 17-19 – lóðarframkvæmd.

Verkið felur í sér endurgerð á lóð Fellaskóla. Undir þennan áfanga fellur stærsti hluti lóðarinnar núverandi leiksvæði sunnan við skólann og boltasvæði austan við íþróttahúsið.Um er að ræða fullnaðarfrágang á leiksvæðum, aðkomum, dvalarsvæðum og bílastæðum.Stærð lóðar er án bygginga 18.400 m², stærð svæðis sem verður endurgert er 11.600 m². Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, malbikun, frágangur leiksvæða, hellulagning aðkomu- og göngusvæða, ásamt tyrfingu og undirvinnu gróðursvæða.

Innifalið í tilboðinu er allt efni og öll vinna við full frágengið verk, einnig er innifalið að fjarlægja og farga öllu efni sem til fellur og ekki er hægt að endurnýta.

Útboðsgögn á geisladiski verða seld í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur á kr. 2.000, milli kl. 8:30 og 16:00, frá mánudeginum 19. apríl 2010.

Opnun tilboða: 3. maí 2010 kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12387