Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Útboðsauglýsingar

16.04.2010

Leikskólinn Vinagerði við Langagerði 1 – lóðarframkvæmd.

F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

Leikskólinn Vinagerði við Langagerði 1 – lóðarframkvæmd.

Verkið felst í endurgerð lóðar við leikskólann Vinagerði - leikskóli í Reykjavík og er lóðin staðsett við Langagerði nr. 1. Aðkoma að lóðinni er frá Langagerði og bílastæði við Réttarholtsveg og miðast framkvæmdasvæðið við alla lóðina. Yfirborð lóðarinnar er í dag að mestu leiti hellulagnir, timburpallar og grassvæði innan girðingar, auk skjólgirðinga sem verða að hluta til endurnýjaðar eða endurbættar. Gert er ráð fyrir að flest þau leiktæki sem eru á lóðinni í dag verði ekki endurnýtt á henni. Helstu breytingar felast í landmótun, færslu og uppsetningu leiktækja, yfirborðsfrágangi og aukning á búnaði og minni leiktækjum.

Verkið felur í séralla þá verkþætti sem þarf til að fullgera endurgerð lóðarinnar frá greftri að fullnaðar frágangi þ.e.a.s. allt ásamt öllum búnaði og leiktækjum innan lóðar, sem skilgreint er samkvæmt útboði þessu, ásamt verklýsingum og verkteikningum.

Útboðsgögná geisladiski verða seld í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur á kr. 2.000, milli kl. 8:30 og 16:00, frá mánudeginum 19. apríl 2010.

Opnun tilboða: 5. maí 2010 kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12388