Útboðsauglýsingar
20.08.2010
Hreinsun gatna- og gönguleiða 2011 - Útboð 4 Breiðholt, EES útboð
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Hreinsun gatna og gönguleiða 2011 - Útboð 4 Breiðholt, EES
Verkið felur í sér hreinsun og þvott á götum, bílastæðum við götu, gönguleiðum, bílastæðum við skóla, hluta skólalóða, grassvæðum í götunánd, með vélsópum, sugum og vatnsbílum og öðrum tækjum sem henta þykir. Samningstími er 1 ár, frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2011.
Útboðsgögn á geisladiski fást á kr. 2.000, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, milli kl. 8:30 og 16:00 frá og með miðvikudeginum 25. ágúst 2010.
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 14. október 2010 kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12485