Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Útboðsauglýsingar

20.08.2010

Hreinsun gatna- og gönguleiða 2011 - Útboð 5 Grafarvogur, EES útboð

F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

Hreinsun gatna og gönguleiða 2011 - Útboð 5 Grafarvogur, EES

Verkið felur í sér hreinsun og þvott á götum, bílastæðum við götu, gönguleiðum, bílastæðum við skóla, hluta skólalóða, grassvæðum í götunánd, með vélsópum, sugum og vatnsbílum og öðrum tækjum sem henta þykir. Samningstími er 1 ár, frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2011.

Útboðsgögn á geisladiski fást á kr. 2.000, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, milli kl. 8:30 og 16:00 frá og með miðvikudeginum 25. ágúst 2010.

Opnun tilboða: Föstudaginn 15. október 2010 kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12486