FRIÐARSÚLAN TENDRUÐ Á VORJAFNDÆGRI

Í vetur er siglt alla laugardaga og sunnudaga til Viðeyjar. Fyrir unnendur útivistar er göngutúr í Viðey skemmtileg viðbót við gönguleiðir og útivistarsvæði borgarinnar og upplagt fyrir göngugarpa að njóta óspilltrar náttúru og friðsemdar í vetrarríki Viðeyjar. Að útivist lokinni tekur Viðeyjarstofa vel á móti gestum og þar má njóta yljandi og hressandi veitinga.
Á vorjafndægri 20.mars verður kveikt á Friðarsúlunni og mun hún loga hvert kvöld í eina viku. Þetta er í síðasta sinn sem Friðarsúlan skín þennan veturinn, - næsta tendrun verður á 70 ára afmæli John Lennon þann 9.október.
Allar nánari upplýsingar um ferðir til Viðeyjar utan áætlunartíma má nálgast hjá Eldingu, www.elding.is
Skoða alla fréttir