VETRARHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 9.-12.FEBRÚAR

Vetrarhátíð verður haldin dagana 9.-12.febrúar. Lýsir hún upp mesta skammdegið með viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi, stórum sem smáum og gefur borgarbúum og gestum tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. Þema ársins er "magnað myrkur" og speglast það með ólíkum hætti í vel á þriðja hundrað viðburða víðs vegar um borgina.
Á Safnanótt, föstudagskvöldið 10.febrúar, flytur hljómsveitin For a Minor Reflection rafmagnaða tónlist í Viðeyjarstofu. Tónleikarnir eru ókeypis en gestir greiða ferjutoll fyrir ferðina til Viðeyjar.
Safnanæturstrætó er ókeypis og verður á ferðinni til miðnættis og mun leið C stoppa við Skarfabakka. Nánari upplýsingar um áætlunartíma safnanæturstrætós og brottfarartíma Viðeyjarferjunnar á Safnanótt verða aðgengilegar innan skamms.
Skoða alla fréttir