ÞRIÐJUDAGSGANGA 27.JÚLÍ - ÚT Í ÓVISSUNA
Þriðjudagskvöldið 27.júlí mun verkefnastjóri Viðeyjar Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leiða gesti um Viðey. Hér er um óvenjulega þriðjudagsgöngu að ræða því haldið verður á vit hins ókunna. Viðey er mikil náttúruparadís og við hver stein og hverja þúfu er að finna sögur úr fortíðinni sem allar verða dregnar fram í dagsljósið. Það má því búast við að leyndarmál verði afhjúpuð og að gestir komist að ýmsu um Viðey sem aldrei hefur áður komið fram. Sannarlega áskorun fyrir forvitna og hugrakka.
Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið á þriðjudagskvöldum en aðra daga lokar kaffihúsið kl. 17:00. Þriðjudagskvöldin eru því kjörin til að bregða sér til Viðeyjar, fá sér léttan kvöldverð í Viðeyjarstofu, hreyfa sig svolítið og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið. Aukasiglingar eru á þriðjudögum kl.18:15 og 19:15 til Viðeyjar en leiðsögnin hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu. Gangan tekur um einn og hálfan tíma og siglt er til baka um kl.22:00. Ferjutollur er kr.1000.- fyrir fullorðna, kr.500.- fyrir 6-18 ára og frítt fyrir þau yngstu. Leiðsögnin er ókeypis og öllum heimil og allir göngumenn og -konur fá Kristal frá Ölgerðinni til að svala þorstanum.
Skoða alla fréttir