01.03.2010
Upplestur á frétt
Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opnað í fyrsta sinn á þessum vetri í dag kl. 15.00 og verða lyftur opnar til kl. 21.00.
Nokkur vindur er á svæðinu en þó ekki það mikill til að geta ekki opnað. Við viljum biðja fólk að skíða/bretta aðeins innan merktra brauta því það er mjög grunnt sé farið utan þeirra.
Þær leiðir sem verða opnar er Norðurleiðin (gamla öxlin), byrjendalyfta við Bláfjallaskála og diskalyftur á Suðursvæði.
Rútan fer frá Olísplaninu í Mjódd kl. 16.15 í dag sem er nýr tími.
Viljum einnig vekja athygli á að hringja alltaf í símsvarann 530 3000 áður en lagt er af stað úr bænum þar sem aðstæður geta skyndilega breyst.
Göngubraut verður lögð kl. 16.00 um Leirurnar.
Skíðalyftur í Ártúnsbrekku og við Dalhús í Grafarvogi verða einnig opnar í dag kl. 16.00-19.00.
Nánari upplýsingar í síma 530 300 eða á www.skidasvaedi.is.
Íþrótta- og tómstundasvið
HöfðatorgBorgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 5000