09.03.2010
Upplestur á frétt
Öllum börnum í 3. og 4. bekk á frístundaheimilum ÍTR er boðið að sækja námskeið í að ferðast með strætó. Fyrsta námskeiðið var í byrjun desember í Fjósinu við Sæmundarskóla. Þessa dagana er verið að þjálfa börn í Breiðholti.
Markmið með Strætóskólanum - Gula risanum er að elstu börnin í frístund læri að nota strætó til að komast leiðar sinnar til tómstundaiðkunar og til að kynnast hverfinu sínu og borginni. Með þvi er verið að stuðla að aukinni notkunn strætókerfisins til framtíðar og um leið minnkandi akstri foreldra með minni mengun og gatnasliti. Námskeiðinu stýrir Björn Finnsson starfamaður ÍTR og tengiliður hans við Strætó er Þórhallur Halldórsson.Lögð er áhersla á að kenna börnunum hvernig nota á vagnana, umgengni, fargjöld, tímatöflur, skiptistöðvar og leiðarkort svo eitthvað sé nefnt. Þá fá börnin að heimsækja höfuðstöðvar og þjónustustöð Strætó. Hvert námskeið tekur um eina viku. Að loknu námskeiði fá börnin staðfestingu á þáttöku sinni í Gula risanum.
Börn úr Fjósinu heimsækja höfuðstöðvar Strætó
Útskrifuð úr Strætóskólanum Gula risanum.
Íþrótta- og tómstundasvið
HöfðatorgBorgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 5000