Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Dagur leikskólans

06.02.2012

Upplestur á frétt 

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Í tilefni dagsins hefur verið gefið út veggspjald með gullkornum frá börnum sem afhent var borgarstjóra í dag. Sjá veggspjaldið.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við. Dagur leikskólans er nú haldinn í fimmta sinn. Í tilefni dagsins hefur m.a. verið auglýst eftir gullkornum frá börnum í leikskólum landsins.

Hátt á annað hundrað leikskólastarfsfólk af öllu landinu fjölmennti líka á fagráðstefnu á laugardag af sama tilefni en þar sem fjallað var um læsi í víðum skilningi. Aðalfyrirlesari var Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor í þroska- og sálmálvísindum við HÍ. Hún benti í erindi sínu á mikilvægi þess að grunnurinn að læsi væri lagður í leikskólanum og því væri mikilvægt að styðja alla daga við málþroska ungra barna.

Stjórnendur í leikskólanum Reynisholti fjölluðu um mikilvægi snertingar og slökunar meðal leikskólabarna og hvernig flétta má jóga við umhverfismennt þannig að leikskólabörn læri að lesa í umhverfi sitt, tilfinningar og samskipti. Frá leikskólanum Fífuborg kom erindi um samskipti og lýðræði í leik með börnum og þátt starfsfólks í leiknum.

Þetta er í þriðja sinn sem að Reykjavíkurborg stendur fyrir fagráðstefnu meðal leikskólastarfsfólks í tengslum við dag leikskólans.