Sólarkaffi í Laugaborg
08.02.2010
Upplestur á frétt 
Dagur leikskólans 6. febrúar var tilefni kaffisamsæta og opinna húsa í leikskólum borgarinnar. Í Laugaborg var boðið í sólarkaffi. Fjölskyldum barnanna, og þá sérstaklega ömmum og öfum, var boðið að fagna hækkandi sól með samveru og skemmtan. Boðið var upp á ástarpunga og pönnukökur sem starfsmenn bökuðu um morguninn. Mikil ánægja var með daginn sem þótti takast með eindæmum vel og vöktu hinar þjóðlegu veitingar athygli.