Tramp tramp trúri og fleiri klapp- og söngvaleikir barna
10.02.2010
Upplestur á frétt 
Barnavinafélagið Sumargjöf hefur gefið öllum leikskólum Reykjavíkur bókina Allir í leik eftir Unu Margréti Jónsdóttur. Í henni er fjallað um leikjasöngva fyrr og nú og er hún mikill fróðleikur fyrir skólastarfsfólk og uppspretta leikja fyrir börnin.
Jón Freyr Þórarinsson kom á fund leikskólastjóra 9. febrúar og færði þeim fyrir hönd Sumargjafar bókagjöfina. Sumargjafasjóður veitti meðal annarra styrk til rannsóknar og útgáfu þessarar skemmtilegu bókar Unu Margrétar, sem geymir dýrmætan menningararf. Í bókinni má lesa sér til um hringleiki, söngvaleiki eftir 1950, eltingaleiki, dansa, sippleiki, klappleiki og orðagaman. Þá eru í bókinni nótur sem Össur Geirsson hljómlistarmaður skráði.
Getið er um klappleikinn Tram tramp trúri í bókinni og eru helstu heimildir 11 ára stúlkur í Breiðholtsskóla árið 2002:
Tramp tramp trúrí
tramp tramp sí galí galí
sjú sjú beibe
sjú sjú a mexikó
gimmí gimmí gaggóa
gimmí gimmí úa
gimmí gimmí gaggóa
ég vil læra að fljúga
:arons beibe
arons adress:
ligga ligga smigga smigga love you hate you kill you!