Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Fræðslufundur um læsi og birtingarmyndir þess

22.02.2010

Upplestur á frétt 

Fimmtudaginn 4. mars kl. 8:30- 11.00 verður haldinn fræðslufundur að Fríkirkjuvegi 1 um læsi og fjölbreyttar birtingarmyndir þess. Fjallað verður um læsi í skapandi starfi, hreyfingu, umhverfis- og náttúrulæsi svo og barnamenningu og menningarlæsi.

Dagskrá
8:30– 9:00 Leikið með læsi í skapandi starfi og hreyfingu
Margrét Sigurðardóttir, deildarstjóri í Ægisborg.

9:00 – 9:30 Maður sér ekki vel með augunum!
Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, menningarráðgjafi hjá
ÍTR, ræðir um barnamenningu og menningarlæsi.

9:30 – 10:00 Sögugrunnurinn og orðahljóð
Guðrún Sigursteinsdóttir sérkennsluráðgjafi kynnir
námsgögn til að efla málþroska og læsi í leik- og grunnskólum.

10:00 – 10:30 Kaffi

10:30 – 11:00 Umhverfis- og náttúrulæsi
Helena Óladóttir, Náttúruskóla Reykjavíkur.

11:00 – 11:30 Ótrúleg eru ævintýrin
Halldóra Guðmundsdóttir, deildarstjóri í Dvergasteini.

Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Fríðu á frida.b.jonsdottir@reykjavik.is eða Ingibjörgu á ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is

Sjá auglýsingu um fundinn.