Styrkur til að gera heimasíðufréttir á táknmáli
25.03.2010
Upplestur á frétt 
Styrkir leikskólaráðs voru afhentir við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í gær. Alls var úthlutað tæpum ellefu milljónum króna til sautján verkefna. Þema við úthlutun að þessu sinni var menningarlæsi og fengu ýmis verkefni styrk sem eiga að stuðla því að börn verði virkir þátttakendur í menningunni.
Hæstu almennu styrkirnir komu í hlut Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna og Myndlistaskólans í Reykjavík og renna þeir til framhaldsverkefna, annars vegar til rannsóknarverkefna á vegum RannUng og hins vegar til samstarfs Myndlistaskólans og leikskóla.
Ellefu verkefni sem snúa að sautján leikskólum fengu þróunarstyrki. Meðal þeirra er verkefni sem leikskólinn Sólborg ætlar að ráðast í en það er að gera heimasíðufréttir úr leikskólanum á táknmáli svo þær séu aðgengilegar heyrnalausum börnum og foreldrum þeirra.
Leikskólinn Hof fékk styrk til að safna þjóðlögum og þjóðdönsum fyrir yngri börn en til stendur að gefa það efni út.
Leikskólinn Reynisholt fékk styrk til verkefnisins Orð af orði sem á að undirbúa leikskólabörn undir formlegt lestrarnám og leikskólinn Ösp fékk styrk til verkefnisins Ævintýradalurinn sem miðar að því að gera Elliðaárdalinn að leiksvæði þar sem börnum verða kennd hin ýmsu örnefni og sögu þeirra. Verkefnið Leikglaðir Norðlingar á leið um lífið á vegum leikskólans Rauðhóls fékk einnig styrk svo og verkefni sem snúa að sjálfsmati leikskóla, útikennslu, tilfinningalæsi, þróun lýðræðislegrar námskrár og fl.
Sjá yfirlit yfir styrki leikskólaráðs 2010.