Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Leikskólinn Hálsaborg 30 ára

16.06.2010

Upplestur á frétt 

Miðvikudaginn 16. júní fagnar leikskólinn Hálsaborg 30 ára afmæli sínu, en hann tók til starfa að Hálsaseli 27 í desember árið 1980.

Börn, starfsfólk og foreldrar hóf afmælishátíðina snemma dags,  eða kl. 10:30, þegar börnin á fimm leikskólum í Seljahverfi hituðu upp undir þjóðhátíðardaginn og fóru í sína árlegu skrúðgöngu í Seljahverfi. Börnin gengu fylktu liði að dvalarheimilinu Seljahlíð þar sem kynslóðir mættust og tóku lagið.

Að lokinni skrúðgöngu kl. 11:30 hófst sjálf afmælisveislan í leikskólanum með lúðrablæstri, söng og veitingum. Þá kom Íþróttaálfurinn í heimsókn og nýtt merki Hálsaborgar var kynnt og fáni með merkinu var dreginn að húni.

Hálsaborg er þriggja deilda leikskóli í Seljahverfi sem starfar m.a. eftir kenningum Berit Bae um samskipti. Virðing, vinátta og sjálfræði eru lykilhugtök í starfinu.