Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Gleðiveggur og vindharpa verða til í foreldrasamstarfi

28.06.2010

Upplestur á frétt 

Starfsfólk, foreldrar og börn áttu ánægjulegt samstarf í garðinum í leikskólanum Sæborg fimmtudaginn 10. júní og bjuggu m.a. til gleðivegg með hlutum sem gefa frá sér ólík hljóð. Foreldrar voru þar að leggja sitt af mörkum til þróunarverkefnisins Að skapa heiminn sem Sæborg tekur þátt í um þessar mundir.

Í vetur hefur farið fram hugmyndavinna um breytingar á garðinum til að gera hann skemmtilegri og ögrandi fyrir börnin í skapandi starfi. Foreldrar settu m.a. upp málningartrönur, vindhörpu, trommu og svo gleðivegginn góða. Þá voru sett niður kefli sem verða nýtt í skapandi starfi og í heimiliskrók sem er á skólalóðinni.