Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Veraldarvinir í Austurborg

02.07.2010

Upplestur á frétt 

Átta veraldarvinir heimsóttu á dögunum börnin í Austurborg og spiluðu m.a. við þau fótbolta. Veraldarvinir starfa í mörgum löndum og vinna allt sitt starf í sjálfboðavinnu. Þeir slógu upp fótboltamörkum við Austurborg og efndu til HM í einn dag. Börnin mættu svo í fótboltabúningum og með fótboltann sinn og spiluðu fótbolta við þessa nýju og góðu vini.

Hópur Veraldarvina hefur verið að störfum hér á landi undanfarnar vikur og tekið þátt í ýmsum verkefnum, s.s. barnastarfi, gatnahreinsun og umhverfisvernd.