Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Fjörug málstofa um námsmat

28.01.2010

Upplestur á frétt 

Skólastjórnendur kynntu sér ýmsar leiðir í námsmati í málstofu 28. janúar. Nokkrir skólar kynntu sínar námsmatsaðferðir;  Ingunnarskóli, Hamraskóli, Laugalækjarskóli og Hagaskóli og menn skiptust á skoðunum um leiðir og markmið. Víða er verið að kanna nýjar aðferðir og nýja tækni í námsmati sem þarf að ræða m.t.t. þess hvort þær séu að skila tilætluðum árangri. Að loknum erindum sköpuðust fjörugar umræður þar sem m .a. var leitað svara við spurningunum; Hverjum á námsmatið að þjóna, og hvað viljum við helst fá út úr því?

Málstofan er liður í símenntun skólastjórnenda á þessum vetri og verður efnt til tveggja til viðbótar á vormisserinu.  Næsta málstofa verður þann 25. mars og verður þá fjallað um teymisvinnu og 29. apríl verður stefnukort í skólastarfi til umfjöllunar.