Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Poppað yfir eldi í útikennslunni

16.02.2010

Upplestur á frétt 

Kennarar og nemendur í Langholtsskóla nota mikið skógarrjóðrið á lóð skólans til útikennslu. Í vikunni voru þau í heimilisfræði undir berum himni. Jóhanna heimilisfræðikennari fór út með nemendur úr yngstu bekkjum og úr 6. bekk og kenndi eldamennsku við opinn eld. Þau yngstu bjuggu til popp og bökuðu brauð á grein, en eldri börnin höfðu örlítið meira við og elduðu hakk í spagetti á stórri pönnu. Börnin nutu útiveru í veðurblíðunni, við eldamennsku og þegar sest var að borðum.