Nemandi í Foldaskóla fær verðlaun fyrir ímyndarmerki
10.03.2010
Upplestur á frétt 
Nemandi í 2. bekk í Foldaskóla, Inga Birna Ísdal Gunnarsdóttir, fékk í dag verðlaun fyrir ímyndarmerki Barnamenningarhátíðar sem hefst í Reykjavík 19. apríl. Undanfarna mánuði hefur staðið yfir samkeppni um merkið í skólum borgarinnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri afhenti Ingu Birnu verðlaunin fyrir merkið sem hún teiknaði í myndmennt, bláan fugl á á vorgrænni grein. Nemendur í Foldaskóla voru viðstaddir athöfnina og léku og sungu fyrir gesti.
Barnamenningarhátíð mun fara fram víðs vegar um borgina, ofan í sundlaugum, upp í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti. Hátíðin snýst um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Börnin í borginni fá Fríkirkjuveg 11 til afnota á meðan á hátíðinni stendur og verður þar ýmis konar starfsemi, tónleikar, listasmiðjur og myndlistarsýningar. Þá verður Norræna húsið með viðamikla dagskrá, listasmiðjur verða í Listasafni Íslands og skákakademía verður sett upp í ráðhúsi Reykjavíkur.
4. bekkingar í grunnskólum Reykajvíkur munu taka þátt í setningarathöfn Barnamenningarhátíðar þann 19. apríl með skrúðgöngu - en hátíðinni lýkur 25. apríl með tónleikum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem flutt verða lög af Vísnabókarplötunum tveimur sem komu út á áttunda áratugnum. Gunnar Þórðarson sem útsetti þau lög mun stjórna tónleikunum.