Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Aðgerðir til að bæta námsárangur drengja

17.08.2010

Upplestur á frétt 

Menntaráð Reykjavíkur hefur ákveðið að leita leiða til að efla námsáhuga drengja í grunnskólum borgarinnar, en rannsóknir sem gerðar hafa verið við Menntavísindasvið HÍ sýna að marktækur munur er á námsáhuga og námsánægju stúlkna og drengja, og það strax í 1. bekk.

Skipaður hefur verið starfshópur skipaður fulltrúum skólastjóra, kennara, foreldra og sérfræðinga til að skoða fræðileg gögn og reynslu skólafólks af aðgerðum til að koma til móts við þarfir drengja í grunnskólanum. Starfshópurinn mun jafnframt rýna í gögn frá móðurskólaverkefnum í Vesturbæjarskóla og Hamraskóla sem miðuðu einmitt að því að bæta námsárangur drengja á fyrsta stigi grunnskóla. Formaður hópsins er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í menntaráði.

Þorbjörg Helga segir það skipa miklu máli að draga fram ástæður þessa misræmis í námsáhuga drengja og stúlkna til að aðgerðir borgarinnar og skólanna verði markvissar og árangursríkar. „Ég hvet alla áhugasama að leggja þessu verkefni lið og hafa samband við starfshópinn, en áform eru um að halda vinnuþing um stöðu drengja í grunnskólanum á komandi vetri“.

Samkvæmt könnun frá árinu 2008 sem unnin var af fræðimönnum við Menntavísindasvið HÍ finnst67% drengja í 1. bekk grunnskóla gaman að læra í skólanum en 83% stúlkna.Sama var upp á teningnum þegar spurt var um lestur; 65% sjö ára drengja fannst gaman að lesa í skólanum, en 74% stúlkna. Í 3. bekk mælist einnig marktækur kynjamunur á námsáhuga þar sem stúlkur eru ánægðari en drengir.