Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Frístundaheimili í færanlegum kennslustofum er tímabundin lausn við Vesturbæjarskóla

26.08.2010

Upplestur á frétt 

Færanlega kennslustofur voru fluttar á skólalóð Vesturbæjarskóla síðastliðna nótt en þær eiga að leysa tímabundna húsnæðiseklu frístundaheimilis skólans. Nemendum við skólann hefur fjölgað talsvert milli ára og útlit fyrir að núverandi húsnæði rými ekki þann fjölda nemenda.

Starfsfólk skólans vaktaði svæðið á meðan skólastarf stóð yfir í dag til að tryggja öryggi barnanna. Svæðið hefur verið girt af í öryggisskyni á meðan unnið verður við frágang á húsunum og svæðinu í kring. Næstu daga verður unnið við lagfæringarnar á kennslustofunum en þær verða meðal annars málaðar og aðgengi bætt. Einnig verður hafist handa við að innrétta þær til að þjóna starfssemi frístundaheimilis. Starfsemi hefst ekki í húsnæðinu fyrr en að eftirlitsaðilar, eins og heilbrigðis- og eldvarnareftirlit, hafa gengið úr skugga um að það uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til skólahúsnæðis.

Um er að ræða tímabundna lausn á vandanum en verið er að leita að hentugu húsnæði í grennd við skólann til að hýsa starfsemina.