Umhverfis- og tiltektardagur hverfisráðs Vesturbæjar 2010
31.05.2010
Upplestur á frétt 
Tiltektardagurinn hefur nú verið fastur liður á dagskrá hverfisráðs í 3 ár. Í ár var hann haldinn 28. maí sl. Vesturbæingar fengu ruslapoka og plasthanska í Vesturgarði, þjónustumiðstöð Vesturbæjar dagana fyrir hreinsunardaginn.
Í ár naut hverfisráð liðstyrks fríðum flokki úr 4 fl. kvenna ásamt foreldrum úr knattspyrnudeild KR. Stelpurnar ásamt foreldrum stormuðu vítt og breytt um Vesturbæinn og tóku til. Stelpurnar úr 4. flokki KR voru mjög ánægðar með árangurinn og skiluðu miklu rusli af sér í Sorpu að lokum. Þær ásamt foreldrum voru sammála um að það væri ekki fyrr en farið væri í svona viðamikla tiltekt sem þau hefðu áttað sig á magni rusls sem kastað væri við göngustíga og alfaraleiðir. Umhverfis- og tiltektardagur hverfisráðs Vesturbæjar var vel heppnaður og var almenn ánægja með framtakið.