Umhverfis- og ljósmyndasamkeppni hverfisráðs 2010
21.06.2010
Upplestur á frétt 
Umhverfisverðlaun hverfisráðs Vesturbæjar
Umhverfisverðlaun hverfisráðs Vesturbæjar verða veitt í haust – íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningar um fallegasta umhverfi við fyrirtæki, stofnun eða einkagarð í Vesturbæ. Tilnefningar sendist á vesturgardur@reykjavik.is Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út 25. ágúst. Hverfisráð Vesturbæjar veitir viðkomandi svæði eða götu viðurkenningu hverfisráðs laugardaginn 11. september.
Ljósmyndasamkeppni hverfisráðs Vesturbæjar
Ljósmyndasamkeppni hverfisráðs Vesturbæjar verður haldin í sumar. Yfirskrift ljósmyndakeppninnar er: “Mannlíf í Vesturbæ”. Viðfangsefnið á að vera úr Vesturbæ og sýna skýrt á einhvern hátt einkenni Vesturbæjarins. Frestur til að skila inn ljósmyndum í keppnina rennur út 25. ágúst nk. Myndum skal skilað á cd. diski eða öðru tölvutæku formi í Vesturgarð, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar að Hjarðarhaga 45 – 47. Mikilvægt er að nafn, netfang og símanúmer sendanda fylgi með. Verðlaunamyndirnar verða svo birtar á vef Vesturbæjar, www.vesturbaer.is 1. september. Ljósmyndasýning með rjómanum af myndunum verður sett upp í Vesturbæ, staðsetning sýningarinnar verður nánar kynnt síðar.