Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Blóma - og kökuboð Gríms, vináttufélags Lynghagaleikvallarins

25.06.2010

Upplestur á frétt 

Í tilefni sumars og blóma býður Grímur, vináttufélag Lynghagaleikvallarins öllum nágrönnum sínum og vinum til sumar-blóma-kökuboðs.

Sunnudaginn 27. júní kl. 15:00

Aðeins eitt skilyrði er fyrir þátttöku í blómaboðinu en það er að gestir taki með sér góðgæti á borð skreytt sumarblómum.

Þá er þess vænst að gestir taki með sér garðhúsgögn, borð, stóla, dúka og allt það sem fegra má umhverfið með. Það má gjarnan koma vel fyrir 15:00)

Grímur – vináttufélag Lynghagaleikvallarins