Blóma- og kökuboð Gríms, vináttufélags Lynghagaleikvallarins
30.06.2010
Upplestur á frétt 
Sunnudaginn 27. júní sl. efndi Grímur, vináttufélag Lynhagaleikvallarins til sumar-blóma-kökuboðs. Allir nágrannar, vinir og velunnarar Lynghagaleikvallarins voru boðnir velkomnir. Fyrirkomulagið var að allir komu með köku og stól með sér. Einn íbúi sá um að kenna fólki að dansa Salsa sem mæltist sérstaklega vel fyrir! Talið er að allt að 50 manns hafi komið við í garðinum og átt náðuga stund með vinum og fengið í leiðinni smá innsýn inn í dansheima suður Ameríku. Meðfylgjandi myndir eru frá kökuboðinu.