Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Tvöfalt afmæli Gríms og Reykjavíkurborgar - 1 ár og 224 ár!

21.08.2010

Upplestur á frétt 

Miðvikudaginn 18. ágúst sl. var haldin hátíð í tilefni af 1. árs afmælis stofnunar Gríms, vináttufélags um Lynghagaleikvöllinn. Að því tilefni var einnig haldið upp á 224 ára afmæli Reykjavíkurborgar.

Íbúar við Lynghaga sem fóstrað hafa leikvöllinn stóðu að hátíðinni af miklum myndarskap. Þau fengu til liðs við sig fjöldan allan af íbúum til að framkvæma einhverja best heppnuðu íbúahátíð fyrr og síðar. Unglingarnir í næsta nágrenni sáu um pylsurnar á grillinu með dyggri aðstoð annara íbúa sem einnig léðu hátíðinni grillin sín, Bláu Ninjurnar hoppuðu og skoppuðu um allan garðinn, Djassdrengirnir í hljómsveitinni "Blæti" fóru alveg á kostum í upphitun fyrir hátíðina og Dr. Gunni og Magga Stína sáu um að allir prumpuðu í takt! Sem vakti mikla kátínu barna... já og fullorðinna!

Viðeigandi ræðuhöld voru líka í boði. Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr hélt stutta tölu um nágrannakærleika og mikilvægi þess að vera sátt hvert við annað. Formaður hverfisráðs, Gísli Marteinn Baldursson fór vítt og breytt um gildi nærsamfélagsins og ræðuhöldum lauk á kraftmikilli ræðu formanns Gríms, Ólafi Mathiesen sem var þakklæti efst í huga.

Við hátíðina studdu svo Melabúðin, Björnsbakarí bauð upp á kleinur og Emmess ís bauð upp á ís.

Það má heldur ekki gleyma þeim íbúum sem mættu með bakkelsi með sér og lögðu þar með sitt af mörkum í nafnleysi og algerri óeigingirni. Starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu einnig þann heiður að styðja við framtakið og má þar nefna starfsmenn Garðyrkjunnar, Framkvæmdasviðs og Vesturgarðs. Þetta var ómetanlegt framtak hjá Ólafi og félögum í Grími, vináttufélagi Lynghagaleikvallarins sem allir þeir Vesturbæingar og aðrir borgarbúar sem mættu í afmælið kunnu að meta.

Mikil stemmning var á hátíðinni og allir skemmtu sér hið besta! Veðrið var þar að auki hátíðinni mjög hliðhollt. Til hamingju með afmælið Grímur og íbúar Reykjavíkur!