Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Opinn íbúafundur um framkvæmdir og skipulag í Miðborg Reykjavíkur

25.01.2010

Upplestur á frétt 

Opinn íbúafundur um framkvæmdir og

skipulag í Miðborg Reykjavíkur

Hverfisráð Miðborgar boðar til opins íbúafundar um framkvæmdir og skipulag í

Miðborg Reykjavíkur þriðjudaginn 26. janúar 2010 kl. 17:00 – 18:30 í sal gamla

Miðbæjarbarnaskólans (nú Mennta- og Leikskólasvið) að Fríkirkjuvegi 1.

Dagskrá:

  1. Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri ræðir um skipulags- og byggingarmál í Miðborginni.
  2. Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri á Framkvæmda- og eignasviði ræðir um framkvæmdir og áform í Miðborginni.
  3. Brynhildur Guðjónsdóttir, ræðir um sýn sína og viðhorf sem íbúi í Miðborginni til framkvæmda og skipulags þar
  4. Pallborðsumræður, þar sem íbúar geta beint fyrirspurnum og umræðum til framsögumanna og komið sjónarmiðum sínum um skipulag og framkvæmdir í Miðborginni á framfæri við borgaryfirvöld.

Fundarstjóri verður Magnús Skúlason, formaður Íbúasamtaka Miðborgar.