Spilakvöld í Fólkvangi á Kjalarnesi
26.01.2010
Upplestur á frétt 
Fyrsta spilakvöld ársins verður í Fólkvangi n.k miðvikudag 27.janúar kl 20:00. Fyrir þá mörgu sem finnst gaman að grípa í spil er þetta tilvalið tækifæri. Takið með ykkur gesti og látið vini og vandamenn vita af spilakvöldinu. Spiluð verður félagsvist, hjarta-spaði-tígull-lauf-grand og nóló. Kaffi á könnunni.
Dagsetningar spilakvölda eru annan og fjórða hvern miðvikudag í mánuði og verða sem hér segir:
27. janúar kl 20:00; 10. febrúar kl 20:00; 24. febrúar kl 20:00; 10. mars kl 20:00 og 24. mars kl 20:00.
Hlökkum til að sjá sem flest ykkar á spilakvöldinu.