Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Tekið á móti fólki frá Haítí í kjölfar náttúruhamfara

10.02.2010

Upplestur á frétt 

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur leitað eftir samstarfi við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar um móttöku fólks frá Haítí í kjölfar náttúruhamfaranna sem þar urðu 12. janúar sl.  Gert er ráð fyrir að um tíu til tuttugu manns frá Haítí komi á næstu vikum og mánuðum til Íslands á grundvelli fjölskyldusameiningar. Stjórn verkefnisins verður í höndum verkefnisstjóra hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar og starfar hann á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða en þar er þekkingarmiðstöð borgarinnar í móttöku innflytjenda og flóttafólks.

Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi sínum í gær ósk ráðuneytisins um samstarf og bókaði samhljóða eftirfarandi:

„Velferðarráð Reykjavíkurborgar lýsir ánægju með hversu fljótt hefur verið brugðist við vegna óska ættingja íbúa Haítí sem hér búa, um að fá ættingja sína til Íslands sökum aðstæðna þeirra á Haítí á grundvelli fjölskyldusameiningar. Hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar er mikil sérþekking á móttöku flóttamannahópa og samþykkir velferðarráð einróma beiðni félags- og tryggingamálaráðuneytisins um að Velferðarsvið Reykjavíkurborgar útvegi verkefnisstjóra til að sjá um móttöku og utanumhald á verkefninu.