Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Styrkir til forvarnaverkefna í Reykjavík

15.02.2010

Upplestur á frétt 

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði Reykjavíkurborgar til forvarnaverkefna. Markmiðið með styrkjunum er að styrkja samstarfsverkefni á sviði forvarna til samræmis við forvarnastefnu Reykjavíkurborgar. Hámarksstyrkupphæð sem veitt er úr sjóðnum er 500.000 kr.

Upplýsingar um forvarnastefnuna og reglur sjóðsins er að finna hér á vefnum og einnig sérstök umsóknareyðublöð um styrki úr sjóðnum.

Umsóknum skal skilað til Samráðshóps um forvarnir í Reykjavík, Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Umsóknir má einnig senda rafrænt á netfangið: velferd@reykjavik.is.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010.

Nánari upplýsingar veita Stefanía Sörheller, verkefnastjóri á skrifstofu Velferðarsviðs í síma 411-1111, stefania.sorheller@reykjavik.is og Guðrún Halla Jónsdóttir, félagsráðgjafi í Miðgarði í síma 411-1400, gudrun.halla.jonsdottir@reykjavik.is.

Meðferð umsókna fylgir almennum reglum um styrkjaúthlutanir Reykjavíkurborgar. Allar umsóknir verða lagðar fyrir Samráðshóp um forvarnir í Reykjavík til umsagnar og fyrir velferðarráð Reykjavíkur til samþykktar.