Dagskrá Rauðakrosshússins
15.02.2010
Upplestur á frétt 
Vikan í Rauðakrosshúsinu byrjar á kynningu frá Innovit um nýsköpun og lykil árangursþætti í stofnun fyrirtækja. Í dag, mánudag, verður einnig hraðskákmót undir stjórn Róbert Lagerman.
Á þriðjudaginn verður fjallað um götubörn í Namibíu og á miðvikudag kemur Ingrid frá Þekkingarmiðlun og talar um
listina að lifa í núinu. Stórskemmtilegur og fræðandi fyrirlestur.
Fluguhnýtingarnar halda áfram á fimmtudaginn auk tungumálahópanna og á föstudaginn koma ráðgjafar frá
Lausninni að fjalla um meðvirkni.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita jafningjaráðgjöf og stuðning í Rauðakrosshúsinu og alla virka daga eru prestar/djáknar með viðveru í húsinu milli kl. 14 og 16.