Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fjörugt starf i félagsmiðstöðinni Hæðargarði

15.02.2010

Upplestur á frétt 

Fjörugt og frumlegt starf í félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31

Fjörugt og frumlegt starf í félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31:

Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31

* Dagskrá í upphafi vorannar 2010 *

Mánudagur

Við Hringborðið kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9. Listasmiðja; útsaumur/handverk o.fl. Félagsvist 13.30. Skapandi skrif kl. 16.00. Ókeypis tölvuleiðbeiningar fyrir tölvugúrúa. kl. 13-14.30. Fundur í Æðsta ráði fyrsta mánudag hvers mánaðar.

Þriðjudagur

Við Hringborðið kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9. Listasmiðjan; kl. 9-12 tréskurður/bútasaumur o.fl. Thaichi. kl. 9.Leikfimi kl. 10 – 11. Morgungestir Steinunnar Finnboga mánaðarlega kl. 9.30 einu sinni í mánuði. Framhaldssagan kl. 10.50. Verslunarferð/Bónus 12.40. Kl. 13 Bridge í Baðstofu kl. 13. Bókabíll 14.15 – 15. Perlufestin kl. 16 – 18.Fundur í bókmenntaklúbbi 3ja hvert þriðjudagskvöld kl. 20.

Miðvikudagur

Við Hringborðið kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9.– Listasmiðjan; postulínsmálun og frjálst handverk. Framsögn kl. 9-16. Hláturhópur kl. 13. Baráttuhópur um bætt veðurfar; verndari Páll Bergþórsson. Ókeypis tölvuleiðbeiningar fyrir tölvugúrúa. kl. 13-15. Gáfumannakaffi kl. 15.

Fimmtudagur

Við Hringborðið kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9. Listasmiðjan; glerskurður. Thachi kl. 9. Leikfimi 10.00. Þegar amma var ungkl. 10.50. Sönghópur Hjördísar Geirs kl. 13.30. Línudans kl. 15.00. Morgunandakt presta Bústaðakirkju kl. 9.30 annan hvorn fimmtudag.

Föstudagur

Við Hringborðið. kl. 8.50. Gönuhlaup kl. 9. Listasmiðjan; myndlist 9-16. Bíódagur kl. 15.30.

  • Í Salnum stendur yfir myndlistarsýning Geirharðs Þorsteinssonar frá 8. janúar.
  • Morgunandakt presta Bústaðakirkju hálfsmánaðarlega. Fyrsta skipti 7. janúar.
  • Hæðargarðsbíó: Nýtt líf eftir Þráin Bertelsson kl. 15.30 15. janúar.
  • Mamma Gógó 19. janúar. Hópferð í rútu. Brottför 15.30.
  • Fyrst morgungestur Steinunnar Finnbogadóttur er Guðrún Helgadóttir 26. janúar.
  • Baráttuhópur um bætt veðurfar undir vernd Páls Bergþórssonar hittist 27. jan. kl. 13.
  • Þorrablót 5. febrúar kl. 17.00 – Sjá auglýsingu!
  • Árleg morgunganga Stefánsgöngu, Hana-nú í Kópavogi og Göngu-Hrólfa auglýst bráðlega.
  • Leikhúsferð – Gerpla? Fjölskyldan? Faust? ... hvað viltu sjá?
  • Dollý Partonkíkir við með “country” tónlist fyrr en nokkurn varir!
  • Tónlistarkvöld með Trausta Ólafssyni: 10. feb. Dieter-Fischer Diskau, 17. feb. Bryn Terfel og 24. feb. Kristinn Sigmundsson.
  • Kynning á íslenskum leikverkum í mars: Nýársnóttin, Galdra – Loftur og Gullna hliðið.
  • Búið er að panta miða á Vínarhljómleikana árið 2011.
  • Æðsta ráð Hæðargarðs fundar fyrsta mánudag í hverjum mánuði.
  • Samvinna við World Class, Leikskólann Jörfa, Bústaðakirkju, Breiðagerðisskóla o.fl.
  • Hópar og einstaklingar sem vilja starfa á eigin grunni hjartanlega velkomnir!

Allir aðrir atburðir og uppákomur auglýstar sérstaklega – þeir sem vilja fylgjast vel með sendi okkur netfang sitt við fyrsta tækifæri; asdis.skuladottir@reykjavik.is

Leigjum út Salinn fyrir fjölskylduhátíðir.Gjafakort í félagsstarfið tilvalin tækifærisgjöf.

Morgunkaffi, hádegismatur og síðdegiskaffi alla virka daga.

Hár-Garður.Opið 9.30-13 virka daga og eftir samkomulagi s. 568-3139g. 553–5610

Fótaaðgerðarstofu Grétu. Opið miðvikudaga og eftir samkomulagi g. 897 – 9801

Upplýsingar: 411-2790Kíktu við í kaffi!

Starfsmenn HæðargarðsVið tökum vel á móti þér!

Með bestu kveðjum frá starfsmönnum og áhugahópi um blómlegt félagstarf í Hæðargarði.