Ókeypis lögfræðiráðgjöf á bókasöfnum
22.02.2010
Upplestur á frétt 
Ókeypis lögfræðiráðgjöf á bókasöfnum
Órator félag laganema, undir leiðsögn reynds lögfræðings, mun á næstu vikum bjóða borgarbúum upp á
lögfræðilega ráðgjöf á bókasöfnum Reykjavíkurborgar. Þjónustan er borgarbúum að kostnaðarlausu en
mannréttindaráð Reykjavíkurborg styrkti Órator til verkefnisins.
Ráðgjöfin hefst n.k. mánudag og verður veitt til reynslu á eftirfarandi bókasöfnum fram á vorið;
22.febrúar kl. 16.00-18.00 Aðalsafn
01.mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn
08.mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn
15.mars kl. 16.00-18.00 Aðalsafn
22.mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn
29.mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn
12.apríl kl. 16.00-18.00 Aðalsafn