Íbúafundur um framtíð Vogahverfis
19.02.2010
Upplestur á frétt 
Íbúafundur um framtíð Vogahverfis
Íbúasamtök Laugardals bjóða til opins íbúafundar í Vogaskóla þriðjudaginn 23. febrúar kl. 20:00-22:00 í tilefni af deiliskipulagi sem nú er unnið að fyrir Vogahverfi sunnan Skeiðarvogs.
Dagskráin verður sem hér segir:
20:00 Inngangsorð
Kristín Þorleifsdóttir, formaður ÍL
20:05 Fornjörðin Laugarnes - sveitin sem hvarf í borgina!
Þorgrímur Gestsson, blaðamaður
20:20 Helstu atriði í þróun skipulags og húsagerðar í Vogahverfi
Pétur H. Ármannsson, arkitekt
20:35 Bo i ro i eget bo" - Húsakönnun í Vogahverfi.
Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingur á Árbæjarsafni
20:50 Umræður
21:00 Kaffihlé
21:10 Kynning á skipulagstillögu
Hildigunnur Haraldsdóttir, arkitekt og ráðgjafi Skipulags– og byggingarsviðs RVK
21:30 Fyrirspurnir og umræður
22:00 Fundarslit
Fundarstjóri verður Bjarni Jónsson
Íbúasamtök Laugardals