22.02.2010
Upplestur á frétt
Ókeypis lögfræðiráðgjöf á bókasöfnum
Orator, félag laganema, undir leiðsögn reynds lögfræðings, mun á næstu vikum bjóða borgarbúum upp á lögfræðilega ráðgjöf á bókasöfnum Reykjavíkurborgar. Þjónustan er borgarbúum að kostnaðarlausu en mannréttindaráð Reykjavíkurborgar styrkti Orator til verkefnisins.
Ráðgjöfin hefst mánudaginn 22. febrúar og verður veitt til reynslu á eftirfarandi bókasöfnum fram á vorið:
22. febrúar kl. 16.00-18.00 Aðalsafn
01. mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn
08. mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn
15. marskl. 16.00-18.00 Aðalsafn
22. mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn
29. mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn
12. apríl kl. 16.00-18.00 Aðalsafn