Samið um rekstur Konukots
10.03.2010
Upplestur á frétt 
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurdeild Rauða Kross Íslands hafa endurnýjað samning um áframhaldandi rekstur Konukots, næturathvarfs fyrir heimilislausar konur í Reykjavík. Samningurinn byggir á eldri samningi um reksturinn og gildir til ársloka 2010.
Í samningnum felst að Reykjavíkurdeild Rauða Kross Íslands ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri Konukots en deildin fær rekstrarfé og húsnæði frá Velferðarsviði. Að auki leggur Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, f.h. Velferðarsviðs, til faglegan tengilið en hlutverk hans er að bjóða gestum Konukots upp á reglulega viðtalstíma og vinna að lausn á félagslegum og húsnæðislegum vanda þeirra.
Konukot er næturathvarf fyrir allt að átta heimilislausar konur sem eiga hvergi höfði sínu að halla. Athvarfið er opið frá kl. 17 síðdegis til kl. 12 á hádegi alla daga ársins. Boðið er upp á léttan málsverð á kvöldin auk morgunverðar. Þvotta- og baðaðstaða er til staðar í athvarfinu og einnig er konunum útvegaður fatnaður ef á þarf að halda. Rekstur Konukots hófst árið 2004