Ráðstefna um sjálfbærar samgöngur og byggðarskipulag í HR.
25.02.2010
Upplestur á frétt 
Háskólinn í Reykjavík býður til opinnar ráðstefnu um sjálfbærar samgöngur og byggðarskipulag í fyrirlestrarsalnum Bellatrix (M1.01) föstudaginn 26. febrúar kl. 10-18. Tilgangur ráðstefnunnar er að skapa umræðu um samgöngu- og skipulagsmál og samtvinnun þeirra, jafnt á landsvísu sem sveitarstjórnarstigi, allt frá almennri stefnumörkun og áætlanagerð til staðbundinna hönnunarlausna.
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu: Samgöngur og skipulag