Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2010
19.08.2010
Upplestur á frétt 
Viðurkenningar vegna fegurstu lóða fjölbýlishúsa og fyrirtækja og endurbóta á eldri húsum í Reykjavík árið 2010 voru afhentar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, á afmælisdegi Reykjavíkurborgar. Viðurkenningarnar árið 2010 hljóta sex lóðir og þrjú hús.
Húsin eru: Bergstaðastræti 22, Þingholtsstræti 13 og Skeggjagata 8.
Í gerinargerð segir að húsin séu af tveimur kynslóðum íbúðarhúsa og úr tveimur hverfum borgarinnar: Þingholtunum og Norðurmýrinni, og spanni því nokkuð breitt bil í byggingarsögu borgarinnar. Tvö húsanna hafa nýlega verið endurnýjuð og eru hvort um sig mjög góður vitnisburður um byggingarlag síns tíma. Þriðja húsið, Þingholtsstræti 13, var friðað 1974 og hefur húsinu verið haldið vel við í mörg ár. Húsin hafa mikið varðveislugildi sem hluti af menningar- og byggingarlistasögu Reykjavíkur.
Lóðirnar eru : Dalbraut 14,16 og 18-20, Þorláksgeisli 19 – 35, Skógarhlíð 6 og lóð Langholtskirkju að Sólheimum 13.
Lóðirnar sem um ræðir fengu allar viðurkenningu fyrir smekklegan og snyrtilegan frágang, gott aðgengi og viðhald.